TAKTU ÞÁTT Í AÐ MÓTA
Framtíð
menntunar

UM VERKEFNIÐ
Hvað er Framtíð menntunar?
Framtíð menntunar er rannsóknarverkefni um gervigreindarlæsi í íslensku skólastarfi. Markmið verkefnisins er að byggja upp sameiginlegan skilning kennara á gervigreindarlæsi og leggja grunn að þróun þess í íslensku skólastarfi.
Með þátttöku þinni leggur þú þitt af mörkum til þróunar á þekkingu sem getur stutt kennara og skóla um land allt.
ÞÁTTTAKA
Hvað felst í þátttöku?
Þátttaka í verkefninu felst í að fara í gegnum netnámskeið um gervigreindarlæsi. Námskeiðið samanstendur af sex stuttum myndböndum og tekur um tvær klukkustundir í áhorfi. Fyrir þau sem vilja kafa dýpra fylgir einnig ítarefni við hvert myndband.
Að loknu netnámskeiðinu verður þér boðið að taka þátt í rannsókninni með því að svara stuttri könnun.
Niðurstöðurnar verða nýttar til að auka þekkingu á gervigreindarlæsi kennara og styðja við áframhaldandi þróun verkefnisins.
Hvað færð þú út úr þátttökunni?
Auktu þekkingu þína
Fáðu skýra og hagnýta kynningu á gervigreindarlæsi og hlutverki gervigreindar í námi og kennslu.
Deildu reynslu þinni
Reynsla kennara skiptir máli. Með þátttöku þinni hjálpar þú til við að varpa ljósi á hvernig gervigreind hefur áhrif á íslenskt skólastarf.
Mótaðu framtíð skólastarfs
Niðurstöður verkefnisins verða nýttar til að þróa leiðbeiningar, stuðningsefni og hæfniramma sem styðja kennara og skóla í innleiðingu gervigreindarlæsis.
